
Stormviðvörun í dag fyrir allt landið
Eftir hádegi í dag gengur í suðaustan og austan 15-23 m/s, en hægari vestanlands fram eftir degi. Gul viðvörun er í gildi fram yfir hádegi á morgun, föstudag, og gildir fyrir allt landið. Það verður rigning með köflum, talsverð úrkoma á Suðaustur- og Austurlandi, en léttir til norðanlands eftir hádegi. Hiti 2 til 10 stig. Dregur hægt úr vindi í nótt, fyrst suðvestantil. Víða sunnan 8-15 m/sek og rigning með köflum eða skúrir undir hádegi á morgun, en allhvasst eða hvasst á Vestfjörðum fram eftir degi. Kólnar síðdegis með dálitlum éljum eða slydduéljum.