Jólaljósin geta skapað slysahættu

Nú þegar jólaljósin eru tekin fram á heimilum landsmanna minnir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) á mikilvægi rafmagnsöryggis. Stofnunin hefur gefið út uppfærðan bækling með góðum ráðum um val, uppsetningu og notkun jólaljósa, en skemmdur búnaður eða röng notkun getur valdið raflosti eða bruna. Mikilvægt er að yfirfara ljósakeðjur áður en þær eru settar upp og ganga úr skugga um að leiðslur, tengingar og perustæði séu óskemmd. LED-ljós eru almennt sparneytnari og hitna minna en hefðbundin glóperuljós og eru því góður kostur.

HMS ráðleggur fólki að slökkva á jólaljósum innandyra áður en gengið er til náða eða heimilið yfirgefið. Þá þarf að gæta þess að ljós séu ekki í snertingu við gluggatjöld, pappírsskraut eða önnur eldfim efni. Einnig ber að varast að ofhlaða fjöltengi eða tengja þau hvert við annað.

Við uppsetningu jólaljósa utandyra er mikilvægt að velja búnað sem ætlaður er til útinotkunar og þolir íslenskt veðurfar. Festa þarf ljósin tryggilega og gæta þess að vatn safnist ekki í raftengingar. Með einföldum varúðarráðstöfunum má draga verulega úr slysahættu yfir hátíðirnar. Nánari upplýsingar og góð ráð má finna í bæklingnum „Jólaljós og rafmagnsöryggi“ á vef HMS.