Það er ekki annað að sjá en að Vilhelm Anton Jónsson hafi skemmt sér vel yfir umræðum um nýútkomna bók sína en Birkir Jón Jónsson stýrði þeim umræðum. Ljósmyndir: TFK

Jólabókaflóðið tókst frábærlega – myndasyrpa

Skólabókasafn Grunnskóla Grundarfjarðar, í samvinnu við leshópinn Köttur út í mýri, stóð fyrir árlegu jólabókaflóði í Samkomuhúsi Grundarfjarðar í gær. Þar mættu rithöfundarnir Arndís Þórarinsdóttir, Felix Bergsson, Vilhelm Anton Jónsson og Yrsa Þöll Gylfadóttir en heiðursgestur var rithöfundurinn Friðrik Erlingsson. Rithöfundarnir lásu upp úr bókum sínum og svo mættu nemendur úr Grunnskóla Grundarfjarðar upp á svið og spurðu rithöfunda spjörunum úr. Góðar umæður sköpuðust en einnig bárust spurningar úr sal sem var þétt setinn. Þessi viðburður var haldinn í þriðja skiptið og verður eflaust framhald á honum.