Heimgreiðslur samþykktar til foreldra ungra barna

Bæjarráð Akraneskaupstaðar hefur samþykkt að taka upp svokallaðar heimgreiðslur til foreldra ungra barna. Markmiðið er að brúa bilið frá því að fæðingarorlofi lýkur og þar til barn fær pláss hjá dagforeldri eða á leikskóla. Greiðslurnar nema 116 þúsund krónum á mánuði og er miðað við að þær hefjist þegar barn hefur náð innritunaraldri í leikskóla. Greitt verður alla mánuði ársins að júlí undanskildum.