
Ingibjartur G. Þórjónsson húsasmíðameistari með sína fyrstu ljóðabók – „Tilveran tekur á“. Bókin er gefin út til minningar um dóttur þeirra hjóna, Laufeyju Ingibjartsdóttur, sem féll frá fyrir aldur fram árið 2011. Hún hefði orðið 60 ára í desember. Texti og myndir: ÓHK
Heiðrar minningu dóttur sinnar með ljóðabók
„Tilveran tekur á. Það tekur á að vera til og verða fyrir áföllum,“ segir Ingibjartur Guðjón Þórjónsson á Akranesi, sem nýverið gaf út sína fyrstu ljóðabók. Bókin ber einmitt heitið Tilveran tekur á og er öðrum þræði uppgjör við sorg og missi, en Ingibjartur missti dóttur sína árið 2011. Í bókinni birtast jafnframt ljóð eftir dótturina, sem fjölskyldan fann meðal eftirlátinna muna hennar, auk smásögu eftir hana. Með útgáfunni vill Ingibjartur heiðra minningu hennar, en hún hefði orðið sextug um næstu jól.