Vægi iðnaðar er mjög mikið í útsvarstekjum Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Ljósm. Norðurál

Vesturland á toppi og botni landslistans í vægi iðnaðar

Út er komin ný Glefsa Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Að þessu sinni er skoðaður iðnaður og vægi hans í útsvarsgrunni sveitarfélaga. Greiningin byggir á tölum Hagstofu Íslands fyrir fyrstu níu mánuði þessa árs og nær til iðnaðar að undanskilinni fiskvinnslu. Athygli vekur hversu mikill munur er á sveitarfélögum á Vesturlandi. Þau skipa tvö af þremur efstu sætunum á landsvísu en jafnframt það neðsta.