
Tóku jákvætt í kaup á flygli Íslensku óperunnar
Á fundi mennta- og menningarráðs Akraneskaupstaðar í síðustu viku var lagt fram erindi frá Jónínu Ernu Arnardóttur skólastjóra Tónlistarskóla Akraness. Þar er óskað eftir heimild til kaupa á Steinway-flygli sem nú er í eigu Íslensku óperunnar. Núverandi flygill í Tónbergi er farinn að láta á sjá vegna mikillar notkunar og er gert ráð fyrir að hann verði færður í hljómsveitarstofu skólans þar sem einnig er þörf á endurnýjun hljóðfæris. Flygill Íslensku óperunnar er vandað hljóðfæri í mjög góðu ástandi sem mun að mati Jónínu Ernu nýtast skólanum næstu 20–30 árin. Áætlað kaupverð er 12 milljónir króna, en til samanburðar má gera ráð fyrir að kostnaður við kaup á nýjum Steinway-flygli af sambærilegum gæðum sé á bilinu 20–35 milljónir, eftir stærð og gerð hljóðfærisins. Því sé um að ræða hagstætt tækifæri til endurnýjunar á hljóðfæraeign skólans til langs tíma. Jafnframt er von á gjöf frá velunnurum skólans til hljóðfærakaupanna, en nýverið gáfu afkomendur Geirlaugs Árnasonar skólanum væna fjárhæð til kaupanna.