
Ný barnaverndarlög styrkja réttindi barna
Alþingi samþykkti í gærkvöldi ný heildarlög um barnavernd sem taka gildi 1. apríl 2027. Um er að ræða umfangsmestu endurskoðun barnaverndarlöggjafar í meira en tvo áratugi. Markmið laganna er að styrkja réttindi barna, bæta þjónustu við þau og tryggja samræmdari framkvæmd barnaverndarmála um land allt, óháð búsetu.