Krefjast dagdvalarúrræða fyrir eldra fólk á Snæfellsnesi

Öldungaráð Grundarfjarðarbæjar skorar á ríkið að tryggja dagdvöl fyrir eldra fólk á Snæfellsnesi og mótmælir þeirri mismunun sem ráðið telur íbúa svæðisins búa við. Málið var tekið fyrir á fundi ráðsins mánudaginn 23. nóvember þar sem bæjarstjóra var falið að fylgja því eftir við stjórnvöld.