
Jólatréð lýsti upp Hólmgarðinn og skapaði notalega jólastemningu. Ljósm. GSP
Jólaljósin tendruð í Hólmgarðinum
Jólaljósin voru tendruð í Hólmgarðinum í Stykkishólmi í gær, þriðjudaginn 24. nóvember, við hátíðlega athöfn. Vel var mætt og ríkti sannkölluð jólastemning þegar jólasveinar mættu á svæðið og glöddu viðstadda.
Börn úr 1. bekk Grunnskólans í Stykkishólmi fengu þann heiður að tendra ljósin og setja þannig jólasvip á bæinn. Kvenfélagið sá um veitingar og seldi heitt súkkulaði og smákökur sem yljuðu gestum.
Þess má geta að sambærilegir viðburðir eru framundan víða á Vesturlandi. Sjá má auglýsingar frá Akraneskaupstað og Borgarbyggð í Skessuhorni í dag.