
Íslendingar vilja ekki selja Landsbankann
Ný könnun Gallup sýnir að 64,9% landsmanna eru andvígir því að ríkið selji eignarhlut sinn í Landsbankanum, að hluta eða öllu leyti. Aðeins 16,1% eru hlynnt sölu og 19% hvorki hlynnt né andvíg. Rúmlega fjórfalt fleiri eru því andvíg sölu Landsbankans en hlynnt. Þegar skoðuð eru svör þeirra sem tóku afstöðu í aðra hvora áttina kemur í ljós að 80,1% eru á móti sölu og 19,9% með henni. Átta af hverjum tíu sem eru annaðhvort hlynnt eða andvíg sölu vilja því halda eignarhlut ríkisins í bankanum.