
Herða refsingar vegna ólöglegrar dreifingar sjónvarpsefnis
Alþingi samþykkti í dag breytingar á höfundalögum sem fela í sér að hámarksrefsing fyrir stórfelld eða ítrekuð brot hækkar úr tveggja ára fangelsi í sex ár. Markmiðið er að stemma stigu við ólöglegri dreifingu og sölu höfundaréttarvarins efnis á netinu í atvinnuskyni og treysta um leið rekstrargrundvöll innlendra fjölmiðla og kvikmyndaiðnaðar. Áætlað er að árlegt tekjutap vegna ólöglegs streymis og niðurhals sjónvarpsefnis hér á landi geti numið allt að fjórum milljörðum króna. Lagabreytingin er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda til stuðnings íslenskum fjölmiðlum sem kynnt var í desember á síðasta ári.