Gular viðvaranir – Hvassir vindstrengir síðdegis í dag og á morgun

Hvassir suðaustan vindstrengir á suðvestanverðu landinu verða síðdegis í dag, t.d. undir Eyjafjöllum, á Kjalarnesi og við Hafnarfjall. Gul viðvörun er í gildi frá klukkan 18 og til miðnættis. Varasamar aðstæður geta skapast fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi.

Á spásvæðinu Faxaflóa verður austan- og suðaustan 15-23 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s við fjöll, t.d. undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi. Við Breiðafjörð verður austan- og suðaustan 15-23 m/s og vindhviður staðbundið yfir 30 m/s við fjöll.

Þá er vakin athygli á að snemma í fyrramálið hvessir á nýjan leik og gul viðvörun tekur aftur gildi um allt vestanvert landið. Þá verður austan- og suðaustan 15-23 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s við fjöll, t.d. undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi. Varasamt ferðaveður.