
Ríkislögreglustjóri, dómsmálaráðherra, utanríkisráðherra og forstjóri Landhelgisgæslunnar við undirritun í morgun. Ljósm. Stjórnarráðið
Gæslan og sérsveitin efld vegna aukinna öryggisógna
Stjórnvöld hyggjast efla eftirlits- og viðbragðsgetu Landhelgisgæslu Íslands og embættis ríkislögreglustjóra til að mæta nýjum og vaxandi áskorunum í öryggis- og varnarmálum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra undirrituðu samninga þess efnis í morgun um borð í varðskipinu Þór að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.