Batna bara með aldrinum

Briddsíþróttin er með blóma í Borgarfirði. Síðastliðið mánudagkvöld var spilað á átta borðum hjá Bridgefélagi Borgarfjarðar í Logalandi. Þá fór fram þriðja af fjórum kvöldum í aðaltvímenningi vetrarins. Það ber helst til tíðinda að aldursforsetarnir á mótinu eru langefstir þegar ein umferð er eftir. Þeir Sveinn Hallgrímsson og Flemming Jessen áttu báðir stórafmæli á árinu, Flemming varð 80 ára og Sveinn tíu árum betur. Báðir hafa þeir verið sigursælir í íþróttum í gegnum tíðina og því engin nýlunda að þeim vegni vel. Þeir hafa nú 61,43% meðalskor. Ólafur Grétar Ólafsson og Viktor Björnsson eru í öðru sæti með 58,73% og Ingimundur Jónsson og Anna Heiða Baldursdóttir þriðju með 58,54%. Næstkomandi mánudagskvöld má því búast við hörku keppni. Á meðfylgjandi mynd úr safni Skessuhorns takast Sveinn og Flemming á við þá Jóhannes á Stafholtsveggjum og Ingólf á Lundum.