
Vilja einfalda skipulagskerfið og greiða fyrir uppbyggingu
Undirbúningur að heildarendurskoðun skipulagslaga er hafinn í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Frá þessu greindi Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, í ávarpi sínu á Skipulagsdeginum. Markmiðið er að skapa betri skilyrði fyrir uppbyggingu, meðal annars á húsnæði, án þess að slaka á kröfum um öryggi og gæði.