
Vetrarmarkaðurinn styrkist og nýjar dyr opnast í ferðaþjónustu
Nýjar tölur frá Ferðamálastofu sýna að 203 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll í október 2026. „Þótt heildarfjöldinn sé svipaður og undanfarin ár er samsetning ferðamanna að breytast hratt og þar felast mikil tækifæri fyrir ferðaþjónustuaðila á Vesturlandi,“ segir Hafþór Ingi Gunnarsson hjá Áfangastaða- og markaðsstofa Vesturlands. Hann segir að Bandaríkjamenn séu áfram stærsti erlendi hópurinn hér á landi og rúmlega 48 þúsund Bandaríkjamenn heimsóttu landið í október síðastliðnum. Það sem vekur þó mesta athygli er mikill vöxtur frá Asíu. Kínverjar eru nú orðnir einn stærsti hópur erlendra gesta og í október voru yfir 21 þúsund kínverskir ferðamenn á leið úr landi. Þá hafa markaðir á borð við Taívan, Indland, Singapúr og Suður-Kóreu vaxið hratt á síðustu árum.