Vasco Da Gama í Grundarfjarðarhöfn 28. október 2025. Ljósm. tfk

Tekjur Grundarfjarðarhafnar dragast saman um fjórðung

Tekjur Grundarfjarðarhafnar af skemmtiferðaskipum námu um 100 milljónum króna á árinu 2026 og drógust saman um 22% milli ára. Á sama tíma fækkaði farþegum um 32%. Miðað við núverandi bókunarstöðu stefnir í að tekjur hafnarinnar dragist saman um 15% til viðbótar á næsta ári. Alls hafa 52 skipakomur verið afbókaðar á tímabilinu 2025–2027 vegna breytinga á skatta- og gjaldaumhverfi greinarinnar.