
Gæti komið til rafmagnstruflana í dag
Vegna vinnu í aðveitustöð Rarik í Grundarfirði gæti komið til rafmagnsleysis frá Vogaskeiði að Fróðá frá kl. 13:15 til 15:00 í dag, miðvikudag. "Ekki er gert ráð fyrir rafmagnsleysi en aukin hætta er á útleysingu meðan á vinnunni stendur og við biðlum til viðskiptavina að fara sparlega með rafmagn meðan á aðgerðum stendur. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528 9000," segir í tilkynningu.