Rödd allra barna í skólanum fékk að heyrast. Ljósm. þgb

Á Barnaþingi gátu öll börn komið skoðunum sínum á framfæri

Alþjóðlegur dagur barna er haldinn 20. nóvember ár hvert. Síðastliðinn föstudag komu allar deildir Grunnskóla Borgarfjarðar saman og héldu Barnaþing. Það er hluti af þróunarverkefni skólans, Framtíðarfólki, en það fléttar áherslur Grænfána, Heilsueflandi skóla, Leiðtogans í mér og Réttindaskóla Unicef saman.