Tengja saman nýsköpunar- og stærri fyrirtæki

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) kynna nýsköpunarverkefni sem nýverið hófst vinna við hér á Vesturlandi. Verkefnið nefnist Kveikjan (Ignite Nordic) og er hluti af norrænu samstarfi sem miðar að því að tengja saman nýsköpunarfyrirtæki og stærri fyrirtæki sem leita nýrra lausna á áskorunum í starfsemi sinni. Þannig skapast tækifæri til samstarfs, vöruþróunar og nýrra viðskiptasambanda.