Stórt skarð er komið í veginn þar sem ræsið brast. Ljósm. KI

Stíflað ræsi á þjóðveginum í Melasveit

Í morgun kom í ljós að klakastífla hafði stíflað ræsi undir þjóðvegi 1 milli bæjanna Skorholts og Skipaness í Hvalfjarðarsveit. Töluvert mikið vatn hafði þá safnast upp fyrir ofan veginn. Þegar klakastíflan svo brast reif hún með sér hluta vegræsisins þannig að skarð kom í veginn. Starfsmenn Vegagerðarinnar og Stefán Ármannsson í Skipanesi vinna nú að bráðabirgðaviðgerð. Vonast er til að viðgerð ljúki í dag. Umferð er hleypt framhjá framkvæmdasvæðinu í hollum um aðra akrein vegarins.