
Tankað á bíl blaðamanns. Ljósm. óhk
Lækkun á heimsmarkaðsverði hefur ekki skilað sér
Samkeppniseftirlitið hefur krafið íslensku olíufélögin um gögn til að hægt verði að leggja mat á þróun eldsneytisverðs frá 1. september síðastliðnum. Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu segir að athugunin beinist meðal annars að breytingum á innkaupsverði eldsneytis í haust og hvernig þær hafa skilað sér í verði til neytenda. Greint var frá því í síðustu viku að verðlagsathugun ASÍ hefði leitt í ljós að lækkanir á heimsmarkaðsverði hefði ekki skilað sér í lækkun hér á landi.