
Íbúar hvattir til að skrá rétt lögheimili fyrir 1. desember
Íbúar eru hvattir til að ganga úr skugga um að lögheimili þeirra sé rétt skráð fyrir 1. desember. Rétt lögheimilisskráning skiptir máli bæði fyrir einstaklinga og sveitarfélög, enda ræður hún meðal annars hvar fólk á rétt á lögbundinni þjónustu og til hvaða sveitarfélags útsvarstekjur þess renna.