
Heitavatnslaust í hluta Borgarness á morgun
Vegna viðgerðar á hitaveitukerfi verður heitavatnslaust í hluta Borgarness á morgun, þriðjudaginn 24. nóvember, frá kl. 10 til 16. Lokunin nær til Helgugötu, Gunnlaugsgötu, Bröttugötu og Egilsgötu auk hluta Skúlagötu og Borgarbrautar. Veitur hvetja íbúa til að halda gluggum lokuðum og takmarka opnun útidyra meðan á lokun stendur, einkum í kuldatíð. Húseigendur eru jafnframt hvattir til að huga að innanhússkerfum sínum.