Benjamín Æsir, sigurvegari Rímnaflæði 2026, lyftir verðlaunagripnum. Ljósm. Grundarfjarðarbær.

Benjamín Æsir bar sigur úr býtum í Rímnaflæði

Benjamín Æsir Markússon, nemandi í 8. bekk Grunnskóla Grundarfjarðar, gerði sér lítið fyrir og sigraði rappkeppnina Rímnaflæði 2026, sem fram fór föstudaginn 20. nóvember. Benjamín keppti fyrir félagsmiðstöðina Eden í Grundarfirði og flutti eigið lag, Ég vs. ég, við góðar undirtektir. Benjamín naut aðstoðar Jeff Mwangi Nduta við undirbúning keppninnar, en Jeff þjálfaði hann, aðstoðaði við upptökur á laginu og fylgdi honum í keppnina. Mikil spenna ríkti í félagsmiðstöðinni Eden á föstudagskvöldið þar sem samnemendur Benjamíns komu saman til að fylgjast með keppninni. Fögnuðurinn var ekki minni þegar úrslitin voru kynnt.