Kveðjustund í Ólafsvíkurkirkjugarði. Ljósm. af

Bekkjarsystkini kvöddu Lilju Dögg

Síðastliðinn laugardag fór fram útför Lilju Daggar Gunnarsdóttur frá Ólafsvíkurkirkju að viðstöddu fjölmenni. Lilja Dögg hafði í tæpt barist hetjulegri baráttu við blandað bráðahvítblæði. Hún var aðeins 17 ára þegar hún lést 7. nóvember á barnadeild Hringsins.

Lilja Dögg ólst fyrstu fimm árin upp í Hafnarfirði. Um mitt ár 2014 fluttist hún með móður sinni og Ingu Sóleyju systur sinni til Ólafsvíkur. Lilja Dögg var alla grunnskólagöngu sína í Grunnskóla Snæfellsbæjar. Haustið 2025 hóf hún nám í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. „Lilja Dögg var vel hugsandi, yndisleg, falleg og góðhjörtuð. Hún var listræn, skapandi og hafði unun af því að lesa,“ segir í minningarorðum um hana.

Eftir athöfnina komu bekkjarfélagar Lilju Daggar úr Grunnskóla Snæfellsbæjar saman í kirkjugarðinum og kvöddu Lilju með bleikum rósum. Útförina hafði Lilja Dögg sjálf skipulagt og var þemað bleikt í hennar anda.