
Stýrivextir áfram í átta prósentum
Stýrivextir Seðlabankans verða óbreyttir í 8%. Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti þetta í morgun. Rök með ákvörðuninni eru þau að verðbólga sé enn of mikil og verðbólguvæntingar yfir markmiði. Stofnunin spáir því að verðbólga fari undir 4% um mitt næsta ár og í 3% undir lok þess. Þá er gert ráð fyrir að atvinnuleysi aukist fram á næsta ár. Verðbólgan verður að mati Seðlabankans meiri á næstunni en hann gerði ráð fyrir í spá sinni í ágúst.