
Millifærslusvik fjórfaldast á tveimur árum
Svikum við millifærslur hefur fjölgað verulega hér á landi undanfarin ár. Skráðum tilvikum fjölgaði úr 322 árið 2023 í 1.358 árið 2025 og hafa þau því meira en fjórfaldast á aðeins tveimur árum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Seðlabanka Íslands um þróun svika í greiðsluþjónustu.