
Gleðigjafar syngja í Borgarneskirkju á laugardaginn
Gleðigjafar, kór eldri borgara í Borgarnesi, verða með tónleika í Borgarneskirkju laugardaginn 21. nóvember kl. 16:00. Frír aðgangur, en peningakassi á staðnum ef fólk vill styrkja kórinn. „Verðum með skemmtilega dagskrá með kórstjóranum okkar, Hólmfríði Friðjónsdóttur, sem einnig spilar á flygilinn og Benjamín Fjeldsted á gítar. Hlökkum til að syngja fyrir ykkur,“ segir í tilkynningu.