Birkir Jón Jónsson bæjarstjóri Grundarfjarðar. Ljósm. tfk

Formgera metnaðarfull áform um baðlón í Grundarfirði

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt samhljóða samning við JAE ehf. um áframhaldandi vinnu við þróun baðlóns í Grundarfirði. Í kjölfar þeirrar ákvörðunar undirrituðu Birkir Jón Jónsson bæjarstjóri og Aðalsteinn Jónsson Þorsteinsson, fyrir hönd JAE ehf., samninginn. Stærstu eigendur JAE ehf eru þeir Aðalsteinn og Jón Ásgeir Jóhannesson. Samningurinn er framhald af viljayfirlýsingu í júní sem sömu aðilar undirrituðu um framgang verkefnisins.