
Byggingarfélag Vesturlands kaupir Trésmiðju Þráins E. Gíslasonar
Byggingarfélag Vesturlands ehf. hefur keypt rekstur Trésmiðju Þráins á Akranesi. Kaupin eru liður í að byggja upp alhliða byggingafyrirtæki sem getur tekið að sér stór verk, allt frá jarðvinnu til lyklaskila. Gengið var frá kaupunum á Trésmiðju Þráins laugardaginn 14. nóvember. Kaupverð er ekki gefið upp. Í júlí 2025 keyptu eigendur félagsins Trésmiðju Akraness sem er sjálfstætt vörumerki innan Byggingarfélags Vesturlands og annast smíðahluta starfseminnar. Rekstur Trésmiðju Þráins bætist nú við og með kaupunum bætist við góður tækjakostur til stærri verkefna.

Auk byggingastarfseminnar er Byggingarfélag Vesturlands löggiltur rafverktaki og býður jarðvinnu, staðsteypu, reisingu forsteyptra eininga, kjarnaborun og steinsögun, auk tækjaleigu. Raflagnir, lýsing og snjallstýringar eru reknar undir vörumerkinu Lýsing & Tækni. Byggingarfélag Vesturlands hóf starfsemi á Akranesi 1. september 2025. Fyrirtækið er í eigu Sigurjóns Bergsteinssonar og Sigurðar Grétars Gunnarssonar. Félagið varð til við sameiningu reksturs tveggja æskuvina. Um 40 manns störfuðu á vegum félagsins í sumar.
„Við höfðum talað um þetta í mörg ár áður en við létum til skarar skríða. Áður vorum við báðir að sinna stórum verkum hvor í sínu lagi, en ákváðum að sameina starfsemina og nýta styrkleika beggja sem best,“ segja þeir Sigurjón og Sigurður í samtali við Skessuhorn.
Viðamikil verkefni
Verkefni Byggingarfélags Vesturlands spanna allt frá viðhaldi og endurbótum til nýbygginga. Meðal fyrstu verkefna fyrirtækisins var umfangsmikil endurbygging á húsnæði World Class á Akranesi, þar sem íþróttahöll var breytt í fullbúna líkamsræktarstöð. Félagið hefur síðan annast frekari framkvæmdir í húsnæðinu, meðal annars við uppbyggingu aðstöðu fyrir Tannlæknastofu Vesturlands. Önnur verkefni eru meðal annars þakskipti og viðgerðir á þakkanti við Jaðarsbraut 23, þakskipti í Ofanleiti síðastliðið sumar og endurbætur fyrir WorldFit í Kringlunni. Þá standa nú yfir framkvæmdir við Blikanes 27 í Garðabæ. Félagið er nú aðalverktaki við Garðavelli 6 og 8 í Hvalfjarðarsveit, þar sem áætluð verklok eru um mitt ár 2027.
Eitt símtal dugar
Sigurjón og Sigurður segja að markmiðið sé að eigendur fasteigna og fyrirtæki þurfi ekki að leita til margra verktaka í senn. „Við viljum að viðskiptavinir okkar þurfi aðeins að hringja eitt símtal til að koma verkefnum af stað. Hvort sem um er að ræða nýbyggingu, endurbætur eða viðhald, er markmiðið að verkkaupar geti treyst á einn aðila sem sér um verkefnið frá upphafi til enda. Með kaupunum á Trésmiðju Þráins styrkjum við enn frekar starfsemi félagsins, tækjakosturinn sem fylgir kaupunum mun nýtast okkur vel í verkefnum af öllum stærðum og skapa aukin tækifæri til vaxtar. Við erum rétt að byrja,“ segja þeir.