Samstarf sex sveitarfélaga um barnavernd

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar 12. nóvember sl. var samþykkt samhljóða viðauka við samning Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar um barnaverndarþjónustu. Samkvæmt viðaukanum verða Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær, Snæfellsbær og Sveitarfélagið Stykkishólmur einnig aðilar að samningnum. Samstarfið nær þar með til sex sveitarfélaga og ber heitið Barnaverndarþjónusta Vesturlands.