
Nýr vedur.is kominn í loftið
Nýr vedur.is vefur Veðurstofunnar veitir veðurspár fyrir mun fleiri staði, fleiri möguleika á kortum og betri yfirsýn yfir viðvaranir og náttúruvá. „Opnunin er fyrsti áfangi í endurnýjun vefsvæða Veðurstofunnar sem á að gera mikilvægar upplýsingar skýrari og aðgengilegri,“ segir í tilkynningu.