
Íbúðaverð hækkar í krónum en lækkar að raunvirði
Íbúðaverð á landinu hækkaði um 0,35% í október, eftir rúmlega eins prósents hækkun í september. Samkvæmt nýjum tölum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) hefur íbúðaverð hækkað um 2,13% síðustu tólf mánuði. Þar sem verðbólga mældist 5,9% á sama tímabili hefur íbúðaverð hins vegar lækkað um 3,56% að raunvirði.