Ingvar Júlíus Tryggvason í Góðu hjóli.

Gott hjól verður opnað á nýju ári

Reiðhjólaverkstæðið Gott hjól verður opnað við Smiðjuvelli á Akranesi á nýjum stað í byrjun næsta árs. Það gerist í kjölfar þess að Axelsbúð hættir starfsemi 18. desember, eins og fram kom í frétt Skessuhorns í síðustu viku. Ingvar Júlíus Tryggvason, eigandi verkstæðisins, hyggst jafnframt auka þjónustuna og hefur samið við TRI um sölu á Cube reiðhjólum og rafmagnshjólum. Viðskiptavinir geta pantað hjól í gegnum verkstæðið og fengið þau afhent á Akranesi á einum til þremur dögum, án aukins sendingarkostnaðar. Verð verður það sama og í Reykjavík og öll þjónusta, viðhald og ábyrgðarmál fara fram á Akranesi. Gott hjól mun sérhæfa sig í viðgerðum og viðhaldi reiðhjóla, meðal annars rafmagnshjóla með Bosch-rafkerfi. Með breytingunum verður Skagamönnum því gert auðveldara að kaupa og þjónusta reiðhjól sín í heimabyggð.