
Slökkvilið Borgarbyggðar hefur á að skipa öflugu liði. Á myndina vantar slökkviliðsmenn frá Bifröst. Texti og myndir: ÓHK
Gamalt hús á Trönu varð vettvangur umfangsmikillar slökkviliðsæfingar – myndasyrpa
Um 35 slökkviliðsmenn, þar af 17 nýliðar, tóku þátt í umfangsmikilli æfingu Slökkviliðs Borgarbyggðar á Ferjubakka í Borgarhreppi á laugardagsmorgun. Þar var gamalt íbúðarhús á Trönu, sem á sér um 140 ára sögu, notað til æfinga við raunverulegar aðstæður áður en það var brennt til grunna undir eftirliti slökkviliðsins.Húsið var reist undir lok 19. aldar, en samkvæmt Guðrúnu Fjeldsted, eiganda hússins, byggði langafi hennar það um 1880 þegar hann seldi baróninum Hvítárvelli og flutti sjálfur að Trönu. Húsið var upphaflega timburhús en síðar forskalað, sem Guðrún segir að hafi orðið því að falli. Burðarvirkið var orðið ónýtt og því ekki talið raunhæft að gera húsið upp.