
Bjóða fyrirtækjum ívilnanir í Flóahverfi
Bæjarráð Akraneskaupstaðar samþykkti nýverið að bjóða frest á greiðslu gatnagerðargjalda vegna úthlutunar atvinnulóða í Flóahverfi. Heimilt verður nú að greiða gatnagerðargjöld ári eftir úthlutun lóðar. Heimildin tekur til lóða sem úthlutað er á tímabilinu 1. nóvember 2026 til og með 31. desember 2027.