Steinólfur í Fagradal. Ljósm. Lárus Magnússon í Tjaldanesi.

Tungutak Steinólfs á Degi íslenskrar tungu

Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar 16. nóvember ár hvert. Í tilefni dagsins er örsýning í Búðardal um tungutak Steinólfs Lárussonar (1928-2012) bónda í Ytri-Fagradal á Skarðsströnd. „Tilgangur sýningarinnar er að minna okkur á að það má og á að leika sér að orðum og kynnast þannig skúmaskotum og fjölbreytileika íslenskunnar. Óhætt er að segja að Steinólfur í Fagradal hafi verið óragur við það. Hann endurnýtti orð og bjó til ný eftir eigin þörfum og sérvisku. Blandaði saman gömlu og nýju og kannaði þannig hvar þolmörkin eru,“ segir í kynningu. Héraðsskjalasafn Dalasýslu og Byggðasafn Dalasýslu standa fyrir sýningunni með dyggri aðstoð Höllu Sigríðar Hrefnu Steinólfsdóttur í Ytri-Fagradal.