
Stjórnvöld hyggjast vinna bug á áhættuhegðun í umferðinni
Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa var haldinn víða um land á sunnudaginn. Hér á Vesturlandi var komið saman á fimm stöðum. Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem tileinka þriðja sunnudag í nóvember þessu efni. Að baki minningardeginum standa innviðaráðuneytið, Samgöngustofa, Landsbjörg, Neyðarlínan, Lögreglan, Vegagerðin og ÖBÍ réttindasamtök. Tilgangur dagsins er að minnast þeirra sem hafa látist í umferðarslysum og hvetja fólk til að leiða hugann að umferðaröryggi og ábyrgð hvers og eins í umferðinni. Við minningarathöfn við þyrlupallinn við Landspítalann í Fossvogi fluttu Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra ávörp. Það gerði einnig Haraldur Már Haraldsson sem sagði reynslusögu sína en hann varð ungur að árum valdur að banaslysi á Akranesi árið 2008.