
Stefnir í stórfeldan halla á rekstri heilbrigðisstofnana
Forstjórar allra sex heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni hafa sent fjárlaganefnd Alþingis bréf þar sem lýst er gríðarlegum hallarekstri þeirra á þessu ári. Þetta eru allar heilbrigðisstofnanir landsins fyrir utan Landspítalann, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðins og Sjúkrahúsið á Akureyri. Til að fylgja erindi sínu eftir hittu forstjórarnir fjárlaganefnd Alþingis á fundi síðastliðinn fimmtudag. Samanlagður rekstrarhalli áætla forstjórarnir verða um fimm milljarða króna í árslok, eða frá 5-15% af veltu, ef ekki berast viðbótarframlög frá ríkinu. Forstjórar segja í bréfinu rekstrarstöðuna sjaldan hafi verið veikari.