Stjórn FKA Vesturland. F.v: Jónína Erna Arnardóttir, Hlédís Sveinsdóttir, Hjördís Pálsdóttir, Gyða Steinsdóttir, Steinunn Helgadóttir, Björg Ágústsdóttir. Á myndina vantar Þurý Hannesdóttur. Ljósm. aðsend

Jólarölt FKA kvenna framundan á Akranesi

Það hefur verið líf og fjör hjá Félagi kvenna í atvinnulífinu (FKA) á Vesturlandi í haust. Fyrstu viðburðir vetrarins hafa gengið framar vonum og þátttaka verið afar góð. Nú undirbýr stjórn félagsins skemmtilegt jólarölt á Akranesi laugardaginn 21. nóvember fyrir félagskonur af Vesturlandi, en að sjálfsögðu eru allar félagskonur um land allt velkomnar að vera með.