María Björg með nýju fuglabókina.

Fyrst bók um Fornahvamm og nú um fugla

„Það var fyrir fáum dögum að koma út bókin mín Fuglar í íslenskri náttúru. Hún hefur fengið góð viðbrögð, en í bókinni eru myndir af mörgum fuglum víða um landið, myndir sem ég hef tekið í gegnum árin,“ segir María Björg Gunnarsdóttir í samtal við Skessuhorn. Fyrir tveimur árum gaf María út bók um Fornhvamm í Norðurárdal þar sem hún ólst upp. Nú eru það fuglar sem heilla.