Fundargestir í Hjálmakletti. Ljósm. SSV/hig

Fundur starfsfólks landshlutasamtaka

Fyrsti allsherjarfundur landshlutasamtaka sveitarfélaga, markaðsstofa landshlutanna og Byggðastofnunar fór fram í Hjálmakletti í Borgarnesi í síðustu viku. Hann markaði tímamót þar sem þessir aðilar komu í fyrsta sinn saman á einum vettvangi til að ræða sameiginleg verkefni, miðla reynslu og styrkja samstarf um byggðaþróun um land allt.