
Bardukha væntanleg í Vinaminni
Eftir nær tveggja áratuga hlé kemur hljómsveitin Bardukha saman á ný til tveggja tónleika í annað sinn á þessu ári í Vinaminni á Akranesi föstudaginn 20. nóvember kl. 20. Á starfsárum sínum lék Bardukha víða um Ísland og Evrópu, meðal annars á alþjóðlegum tónlistarhátíðum, og kom jafnframt reglulega fram í útvarpi og sjónvarpi. Tónleikarnir þóttu eftirminnilegir fyrir kraft, náið samspil og leikgleði tónlistarmannanna. Þeir sem vilja upplifa Bardukha á tónleikum ættu því ekki að láta þetta tækifæri framhjá sér fara. Hljómsveitina skipa: Hjörleifur Valsson – fiðla og söngur, Ástvaldur Traustason – harmonika, Birgir Bragason – kontrabassi og Stengrímur Guðmundsson – slagverk.