Vetrarstilla á Akranesi. Ljósm. óhk

Vilja stytta endurhæfingartíma og samræma mat á starfsgetu

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur lagt fram drög að frumvarpi sem miðar að markvissari endurhæfingu og auknum möguleikum fólks til að snúa aftur á vinnumarkað eftir veikindi. Meðal breytinga er að stytta hámarkstíma sjúkra- og endurhæfingargreiðslna í þrjú ár, samræma mat á réttindum og einfalda þjónustu við einstaklinga sem missa starfsgetu vegna veikinda. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að endurhæfing hafi skilað auknum árangri á undanförnum árum og færri einstaklingar en áður verið metnir með varanlega örorku að henni lokinni. Á sama tíma hefur meðalendurhæfingartími lengst verulega, úr tæpum 12 mánuðum árið 2017 í um 21,5 mánuði nú.