Stjórnsýsluhúsið á Hagamel. Ljósm. arg.

Traustur rekstur og engar langtímaskuldir

Fyrri umræða um fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun 2028–2030 fór fram á fundi sveitarstjórnar í gær. Samþykkt var samhljóða að vísa áætluninni til síðari umræðu. Samkvæmt fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir að heildartekjur Hvalfjarðarsveitar á árinu 2027 nemi um 2.502 milljónum króna og heildargjöld um 2.468 milljónir. Áætlaður rekstrarafgangur án tillits til fjármagnsliða er um 33 milljónir króna, en að teknu tilliti til fjármagnsliða er gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu upp á 88,8 milljónir króna. Engar langtímaskuldir hvíla á sveitarfélaginu. Við framkvæmdir á næsta ári verður ekki gripið til lántöku.