
Sjómannasambandið með fyrsta samninginn í fjórtán ár
Í morgun var undirritaður nýr kjarasamningur Sjómannasambandsins við Landssamband smábátaeigenda, LS og Samtök smærri útgerða. „Það er fagnaðarefni að loksins hafi tekist að gera nýjan samning fyrir smábáta. Síðast var gerður kjarasamningur fyrir smábáta árið 2012. Samningurinn er í anda þess samnings sem sjómenn gerðu 2024 við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi. Meðal annars var samið um að sjómenn á smábátum fái 3,5% í tilgreinda séreign frá útgerðinni. Samningurinn fer nú í kynningu meðal félagsmanna og atkvæðagreiðslu að henni lokinni,“ segir í tilkynningu frá Valmundi Valmundssyni formanni Sjómannasambandsins