
Mótmæla við Alþingi skerðingu framlaga til LbhÍ
„Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir yfir þungum áhyggjum og mótmælir harðlega fyrirhuguðum niðurskurði á fjárframlögum til Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) á Hvanneyri, sem nemur um 400 milljónum króna. Samkvæmt tillögum háskólaráðuneytisins stefnir í að LbhÍ verði eini háskólinn á landinu sem fær lægra heildarframlag úr reiknilíkani háskólanna en árið á undan.“ Þannig hljómar umsögn sveitarstjórnar Borgarbyggðar til Alþingis sem samþykkt var samhljóma á fundi 12. nóvember. „Verði af þessum áformum fær skólinn aðeins um 75% þess rekstrarframlags sem forsendur stóðu til. Framlag ráðuneytisins myndi þá aðeins standa undir um 45% áætlaðs rekstrarkostnaðar skólans, samanborið við um tvo þriðju hluta á undanförnum árum. Þetta er grundvallarbreyting á forsendum starfseminnar sem ógnar beint tilvist og rekstrargrundvelli skólans.“