
Jólasmákökurnar framleiddar í Geirabakaríi
Það var í mörg horn að líta í Geirabakaríi í Borgarnesi í gærmorgun þegar blaðamaður Skessuhorns leit þar við. Eftir að hafa bakað brauð og kökur dagsins tók við smákökubakstur. Ömmukökur voru í framleiðslu og margar hendur á lofti við að sprauta smjörkremi á milli laga. Á myndinni eru þau Sigurþór Kristjánsson og Þórdís Arnardóttir, eigendur bakarísins, sem bæði taka virkan þátt í framleiðslunni auk þess að sjá um reksturinn. Sissi segist nota uppskrift að ömmukökum frá ömmu sinni Sigríði Halldóru, það útskýri nafnið. Hann segir mjög góða sölu af smákökum, jólabrauði og jólakökum hjá þeim. Auk sölu í Geirabakaríi sjálfu framleiða þau einnig fyrir Melabúðina og Kaupfélag Húnvetninga á Hvammstanga. Það eru því mörg handtökin að framleiða nóg upp í söluna.